
DRAUMALANDSLAG ÞYKJÓ - skapandi smiðja á sviði landslagsarkitektúrs
Hvernig er þitt draumalandslag? Viltu bleika sanda, hrjóstrugt hraun úr piparkornum eða karrýgul jarðhitasvæði?
Við skoðum náttúruna með augunum, höndunum…og ímyndunaraflinu! Þátttakendur hanna lítinn landskika fyrir ímyndaðan íbúa og þjálfast í að hugsa í skala og móta umhverfi í kringum lífveru.
ÞYKJÓ er þverfagleg hönnunarstofa sem vinnur fyrir og með börnum. Verkefnin eru fjölbreytt á sviði vöruhönnunar, upplifunarhönnunar, innsetninga og þátttökuverkefna. Hönnunarstarfið miðar að því að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna í frjálsum leik, en á meðal verkefna hópsins má nefna Hljóðhimna í Hörpu, húsgagnalínuna Kyrrðarrými, búningalínuna Ofurhetjur jarðar og þátttökuverkefnið Gullplatan – Sendum tónlist út í geim. ÞYKJÓ hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir störf sín, en þeirra á meðal eru Hönnunarverðlaun Íslands árið 2024, SVEF verðlaunin 2021 og YAM Awards 2023.