Mín dagskrábookmark
SVO NÆS - Sara Matt

SVO NÆS - Sara Matt

  • Myndlist
  • calendar_todayFöstudagur, 23. október · 16:00–19:00
  • calendar_todayLaugardagur, 24. október · 12:00–19:00

Sara Matt - SarmVerk

Svo Næs er sýning á verkum sem hafa orðið til úr tilraunum og löngunum til að prófa eitthvað nýtt.

Á sýningunni eru flosverk ásamt töskum unnar úr flosi sem hefur verið tilraunarstarf. Sum verkin byrjuðu sem ákveðnar hugmyndir, önnur verk urðu til nánast fyrir tilviljun. Efniviðurinn er sömuleiðis blandaður. Í verkunum er mikið notast við efni sem þegar hefur átt sér annað líf og ratað aftur í hringrásina. Þannig blandast saman ólík áferð.

Svo Næs er því ekki endilega sýning um eitt ákveðið viðfangsefni. Hún er frekar augnabliksmynd af því hvar listamaðurinn er staddur í sköpuninni núna. Að þora að prufa sig áfram, sjá hvað kemur og treysta innsæinu. Leyfa hlutunum að verða að einhverju skrítnu og skemmtilegu.

Þá verður útkoman stundum bara svo næs.