Mín dagskrábookmark
Skaginn á filmu - Kvikmyndasafn Íslands

Skaginn á filmu - Kvikmyndasafn Íslands

  • Kvikmyndir
calendar_todayÞriðjudagur, 27. október · 17:00location_onTónlistarskólinn á Akranesi

Kvikmyndasafn Íslands býður til sérstakrar kvikmyndasýningar í Tónbergi á Vökudögum þar sem dregnar verða fram sjaldséðar perlur úr safnkosti þess. Á dagskrá eru gamlar kvikmyndir frá Akranesi og nágrenni sem margar hafa ekki verið sýndar opinberlega í áratugi.

Gestir fá einstakt tækifæri til að stíga aftur í tímann og kynnast íþróttastarfi, sjómennsku og daglegu lífi í ört vaxandi sjávarþorpi á 20. öld. Myndirnar eru ómetanlegar heimildir um sögu og samfélag Akraness og vekja fortíðina til lífs á hvíta tjaldinu.