Mín dagskrábookmark
Okkar spor

Okkar spor

  • Myndlist
location_onStillholt 23
  • calendar_todayFöstudagur, 23. október · 16:00–20:00
  • calendar_todayLaugardagur, 24. október · 14:00–18:00
  • calendar_todaySunnudagur, 25. október · 14:00–18:00
  • calendar_todayMánudagur, 26. október · 16:00–18:00
  • calendar_todayÞriðjudagur, 27. október · 16:00–18:00
  • calendar_todayMiðvikudagur, 28. október · 16:00–18:00
  • calendar_todayFimmtudagur, 29. október · 16:00–18:00
  • calendar_todayFöstudagur, 30. október · 16:00–18:00
  • calendar_todayLaugardagur, 31. október · 14:00–18:00
  • calendar_todaySunnudagur, 1. nóvember · 14:00–18:00

Myndlistasýning þriggja kvenna þær sýna myndlist og leirlist.

Brynja Jóhannsdóttir:

Verkin mín eru olíumálverk, unnin á mismunandi tímum og þess vegna að mörgu leyti ólík. Þau eiga það þó sameiginlegt að vísa í náttúruna og lífið, oft með abstract áhrifum. Ég legg áherslu á kyrrð, einfaldleika, form og liti.

Heiðrún Hannesdóttir:

Í gegnum tíðina hef ég málað meira með olíu en er nú að prófa akrýlinn líka. Leita mikið í náttúruna og mannlífið. Hef einnig gaman að því að gera tilraunir.

Ingigerður Guðmundsdóttir:

Á síðustu árum hef ég mest verið að vinna í leir en aðeins verið að mála með olíu líka. Ég fæ innblástur frá náttúrunni, fuglar, fólk og blómin eru ofarlega í huga mínum og leik mér gjarnan með formin og liti, tek það frá raunheimum í minn heim.