Mín dagskrábookmark
Málverkamaður - Mikael Jónsson

Málverkamaður - Mikael Jónsson

  • Myndlist
location_onBreið Þróunarfélag
  • calendar_todayFimmtudagur, 22. október · 18:00–21:00
  • calendar_todayFöstudagur, 23. október · 18:00–21:00
  • calendar_todayLaugardagur, 24. október · 13:00–20:00
  • calendar_todaySunnudagur, 25. október · 13:00–18:00
  • calendar_todayLaugardagur, 31. október · 13:00–18:00

Sigurður Mikael Jónsson heldur myndlistarsýninguna MÁLVERKAMAÐUR í Breið þróunarsetri á Vökudögum. Þar verður hann með úrval landslagsmálverka af ýmsum stærðum og verðum til sýnis og sölu. Einnig verða eftirprent í takmörkuðu upplagi og tækifærisskort til sölu á staðnum.

Mikael, eins og hann er alltaf kallaður, er fæddur og uppalinn á Akranesi. Hann er sjálflærður listmálari sem tók í fyrsta sinn upp pensla árið 2018 og hefur síðan verið óþreytandi í að mála litrík og kraftmikil olíumálverk innblásin af íslenskri náttúru og deila þeim með langþreyttum fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum. Þar er hægt að finna hann á Facebook og Instagram undir nafninu @smjmyndir.  Hann er líka að uppgötva þann dulda hæfileika að hann er furðugóður í að skrifa um sjálfan sig í þriðju persónu enda var hann blaðamaður í 12 ár og eru þeir alræmdir fyrir sjálfhverfu. Hann lofar hins vegar að vera alfarið í fyrstu persónu alla Vökudaga.  

MÁLVERKAMAÐUR er þriðja einkasýning Mikaels á Vökudögum. Fyrri sýningar eru: LISTAVERKAMAÐUR (2024), Fjallið fagra og firnindi (2023) og samsýningarnar Uppbrot (2023) og Vökudagar á Höfða (2022).